top of page
Search


Framboð boða aðgerðir gegn svifryki
Framboð til sveitarstjórna sem svöruðu bréfi breiðfylkingar fyrir bætt loftgæði taka undir að grípa þurfi til aðgerða gegn svifryksmengun í þéttbýli. Lungnasamtökin, Hjartaheill, Astma- og ofnæmisfélag Íslands og SÍBS sendu framboðum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri spurningar um loftgæði og aðgerðir gegn svifryki. Svörin hafa nú verið birt á vef Lungnasamtakanna. „Það er mjög mikilvægt að sjá að framboð úr ólíkum áttum viðurkenna vandann og boða aðgerðir. Nú skiptir máli a
May 7


Einmanaleiki
Að vera sjálfum sér nægur er eiginleiki sem sumir njóta en það er ekki öllum gefið. Að vera einmana er tilfinning sem margir upplifa, jafnvel þó að þeir séu ekki einir í eiginlegri merkingu. Að greinast með alvarlegan sjúkdóm sem heftir okkur í daglegu lífi getur hindrað okkur í því að taka þátt í ánægjulegum hlutum sem gáfu lífinu gildi. Getan minnkar og fólk dregur sig í hlé án þess að aðrir verði þess varir og þau geta einangrast og sumir verða einmana. Hvað er til ráða? V
Feb 26


Styrkir úr Vísindasjóði Lungnasamtakanna
Styrkur úr Vísindasjóði Lungnasamtakanna 2025 var afhentur þriðjudaginn 13. janúar 2026 við hátíðlega athöfn í húsnæði Endurhæfingarstöðvar hjarta- og lungnasjúklinga (HL-stöðinni), Hátúni 14 í Reykjavík. Umsækjendur um styrki voru að þessu sinni sjö og hlutu fjórir styrki samtals að upphæð 1.500.000 krónur. Sjóðurinn hefur nú fest sig í sessi sem endurspeglast í mjög góðum og spennandi umsóknum. Eftir afhendinguna fluttu styrkþegar stutt og áhugaverð erindi um rannsóknarverk
Feb 3


Félagsfundur 2. febrúar
Að hreyfa sig er eitt af því mikilvægasta sem allir þurfa að gera. En það er ekki alltaf jafn auðvelt fyrir lungnasjúklinga sérstaklega þegar veðráttan er ekki með okkur í liði. En við deyjum ekki ráðalaus. Notum það sem við höfum heima við og gerum æfingar sem tryggja styrk og liðleika. Stundum léttar æfingar á hverjum degi allt árið um kring og ef við komumst út í góða veðrið þá verður það bara ánægjuleg viðbót.
Jan 27


Perlupepp í janúar
Vantar þig smá bjartsýni í líf þitt og viltu innblástur til að finna hana? Í fyrirlestrinum ,,Veldu þér viðhorf" fjallar Perla Magnúsdóttir, stundum kölluð Perla Pepp, um það hvernig bjart viðhorf getur breytt öllu fyrir okkur. Með því að trúa á okkur sjálf og taka ábyrgð á að skapa það líf sem við viljum lifa getum við notið þess enn meira og liðið betur með okkur sjálf. Farið verður yfir nokkur ráð sem geta hjálpað við að byggja okkur upp sem manneskjur og hvernig við getum
Dec 26, 2025


Nov 24, 2025


LLT dagurinn
Í dag 19. nóvember, er alþjóðlegur dagur langvinnar lungnaþembu. Af því tilefni var opnuð vefsíða hjá EFA með almennum upplýsingum fyrir LLT-sjúklinga um hvernig hægt er að fá súrefnisþjónustu í löndum Evrópusambandsins. Upplýsingarnar má finna á vef samtakanna https://efanet.org/projects/copd/travel-with-oxygen þar er jafnframt að finna hlekki á upplýsingar frá 6 löndum sem hafa nú þegar útbúið upplýsingar tengdar þeirra heimalandi. Lungnasamtökin hafa nú þegar sett upp sína
Nov 18, 2025


Vísindasjóður
Frestur til umsókna í sjóðinn hefur verið framlengdur til 15. nóvember
Nov 3, 2025


Styrkleiki
Getur jákvæð sálfræði orðið að súrefni? Mette Pedersen mun, með hjálp hugtaka úr jákvæðri sálfræði, varpa ljósi á möguleika til að finna taktinn í daglegu lífi – jafnvel þegar súrefnið er af skornum skammti. Hún mun ræða hvort og hvernig við getum eflt seiglu, lífsgleði og jafnvægi í lífinu – þegar álagið er mest – og hvernig við getum styrkt innri kraft okkar til að takast á við álag og breytingar. Mette Pedersen hefur unnið á bráðamóttöku Landspítalans, bæði á Hringbraut og
Oct 27, 2025


Félagsfundur
Eins og svo oft áður hittumst við í byrjum vetrar og spilum félagsvist. Félagsvist er einfalt og skemmtilegt spil en fyrst og fremst leið til að kynnast og ná sambandi við aðra. Tryggt er að allir hittist og spjalli eitthvað saman en fyrst og fremst náum við að brjóta ísinn og tengja fólk hvað við annað. Hlökkum til að sjá sem flesta. Stjórnin
Oct 1, 2025


Haustfundur
Hvert skal stefna í starfsemi Lungnasamtakanna, eru óbrúaðar ár á leiðinni? Fyrsti félagsfundur vetrarins verðu mánudaginn 1. september í Lindakirkju. Athugið að nú hefjast fundirnir klukkan 17:00 og vonumst við þannig til að fleiri hafi tök á að mæta á fundina auk þess sem eftirmiðdagsumferðin verði að mestu liðin hjá. Við byrjum eins og undanfarin haust á að spá í spilin og hlusta á hvað brennur á félagsönnum. Allar tillögur um dagskrá félagsfunda, efni í Lungu blað félagsi
Aug 26, 2025


Saga Reykjalundar
Reykjalundur 1960 Bókin Reykjalundar 80 ára 1945-2025 kemur út í haust. Nú gefst tækifæri á að panta hana í forsölu og fá nafn sitt skráð í heillaóskaskrá fremst í bókinni. Saga Reykjalundar fjallar í máli og myndum um tilurð og starfsemi þessarar merku stofnunar. Frásagnir og myndir af fólki og atburðum skipa veigamikinn sess og koma nú í fyrsta sinn fyrir almenningssjónir. Höfundur bókarinnar er Pétur Bjarnason.
Jun 10, 2025


Sumartími!
Nú er sumarið komið og starfsemi Lungnasamtakanna verður í rólegum takti. Við eru þó með símann við hendina (560-4812) og svörum pósti (lungu@lungu.is) sem berst okkur, við komum svo sterk til baka í haust og fyrsti félagsfundur verður 1. september að öllu óbreyttu.
Jun 3, 2025


Aðalfundur
Venjuleg aðalfundarstörf skv. lögum samtakanna Skýrsla stjórnar Reikningar lagðir fram fyrir liðið ár Ákvörðun árgjalda Lagabreytingar Stjórnarkjör Kjör tveggja skoðunarmanna Önnur mál
Apr 17, 2025


Mæði!
Rut Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur Rut mun fræða okkur um mæði og áhrif þess á lífsgæði lungnasjúklinga. Mæði er mjög flókið fyrirbæri og skýrist ekki eingöngu af lungnasjúkdómum eða skertu þoli. Einstaklingar upplifa eða skynja mæði á mismunandi hátt og fjölmargir ótengdir þættir geta haft áhrif. Það eru ýmsar leiðir til að draga úr mæði og við munum fara yfir það í sameiningu. Rut Gunnarsdóttir hefur unnið við heimahjúkrun í fjöldamörg ár og vinnur í lungnateymi á Göngu
Mar 19, 2025


Félagsfundur 3. mars
Sólrún mun kynna Félag íslenskra lungnalækna sem eins og nafnið gefur til kynna samanstendur af sérfræðingum í lungnalækningum. Hún er auk þess með puttann á púlsinum um það helsta sem er að gerast á sviði lungnalækninga og getur vonandi upplýst okkur um töfralækningu allra meina sem er rétt handan við hornið. Sólrún er einnig til í að svara spurningum sem brenna á félagsmönnum en hún starfar á Landspítalanum í Fossvogi og þekkir vel fjölþætta starfsemi lungnalækna sem þar fe
Feb 26, 2025


Félagsfundur - ÖBÍ
Alma Ýr Ingólfsdóttir var kjörinn nýr formaður ÖBÍ 7. október 2023 hún stendur því í broddi fylkingar í réttindabaráttur félagsmanna og verkefnin því ærin. Alma ætlar að koma á félagsfund hjá Lungnasamtökunum mánudaginn 3. febrúar og upplýsa okkur um starf ÖBÍ og helstu málefni líðandi stundar. Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna og taka virkan þátt í umræðunni.
Jan 30, 2025
bottom of page


