Breiðfylking kallar eftir aðgerðum gegn svifryki
- Apr 27
- 3 min read
„Góð loftgæði eru hagsmunamál okkar allra, en sérstaklega barna, aldraðra og fólks sem glímir við sjúkdóma. Það er óásættanlegt að fólk þurfi að óttast að vera utandyra eða senda börn í skólann vegna loftmengunar,“ segir Andrjes Guðmundsson og vísar þar til þess að ítrekað hafi skapast óheilnæmt ástand vegna svifryksmengunar á helstu þéttbýlissvæðum landsins.
Lungnasamtökin, Astma- og ofnæmisfélag Íslands, Hjartaheill og SÍBS hafa myndað breiðfylkingu sem kallar eftir því að aðgerðir til að draga úr svifryksmengun verði settar á dagskrá í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.
Loftgæði eru stórt kosningamál
Samtökin hafa sent framboðum til sveitarstjórna á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri bréf þar sem lýst er yfir miklum áhyggjum af því ástandi sem ítrekað hefur skapast vegna svifryksmengunar á stærstu þéttbýlisstöðum landsins. Samtökin kalla eftir aðgerðum og óska eftir svörum frá framboðunum um hvernig þau ætli að beita sér fyrir aðgerðum í þágu bættra loftgæða. Svörin verða birt á vef Lungnasamtakanna þann 6. maí, tíu dögum fyrir kosningar.
„Svifryksmengun skerðir lífsgæði, en það er hægt að draga verulega úr henni með skipulagi, forvörnum og markvissum aðgerðum. Slíkar aðgerðir eru að miklu leyti á ábyrgð sveitarfélaga og því ættu þær að vera eitt af stóru kosningamálunum,“ segir Andrjes Guðmundsson og bætir við: „Það er hægt að draga úr þessum vanda og við viljum gefa framboðunum tækifæri til að upplýsa kjósendur um það hvernig þau ætli að gera það. “
Breiðfylkingin fyrir bætt loftgæði
Að bréfinu stendur breiðfylking samtaka sem vinna í þágu fólks með öndunarfæra-, hjarta- og æðasjúkdóma: Lungnasamtökin, Hjartaheill, Astma- og ofnæmisfélag Íslands og SÍBS.
Hér á vef Lungnasamtakanna er að finna nánari upplýsingar um svifryk og mögulegar aðgerðir til að koma í veg fyrir að það leiði til heilsuspillandi ástands.
Hér er efni bréfsins sem sent var á framboðin:
Undanfarin ár hafa slæm loftgæði vegna svifryksmengunar valdið íbúum á stærstu þéttbýlisstöðum landsins sívaxandi áhyggjum og óþægindum. Síðastliðinn vetur skapaðist ítrekað afar óheilnæmt ástand vegna svifryksmengunar af mannavöldum.
Loftgæði eru ein mikilvægasta forsenda lífsgæða í þéttbýli og sannað er að slæm loftgæði hafa verulega neikvæð áhrif á heilsu. Börn, aldraðir og fólk sem glímir við lungna-, hjarta- og æðasjúkdóma eru í sérstökum áhættuhópi og getur ástand líkt því sem skapaðist á liðnum vetri haft mjög neikvæð áhrif á daglegt líf þeirra og heilsu.
Mikilvægt er að hafa í huga að almennt eru loftgæði á Íslandi með því besta sem þekkist í Evrópu, þ.e.a.s. þegar horft er til meðaltals á hverjum sólarhring. Hins vegar ef horft er til toppa í styrk svifryks, sem vara í nokkrar klukkustundir í senn á ákveðnum tímum ársins, eru loftgæði með því versta sem þekkjast og þá skapast verulega óheilnæmt ástand á stærstu þéttbýlisstöðum landsins. Þessir toppar eru í flestum tilvikum af mannavöldum, tengjast beint álagstímum bílaumferðar og í einhverjum tilvikum framkvæmdum og efnisflutningum. Vandamálið er því afmarkað og það þýðir að hægt er að grípa til aðgerða til þess að lágmarka það eða a.m.k. draga úr vandanum.
Lungasamtökin, Hjartaheill, Astma- og ofnæmisfélag Íslands og SÍBS hafa miklar áhyggjur af því ástandi sem ítrekað hefur skapast vegna svifryksmengunar á stærstu þéttbýlisstöðum landsins. Samtökin telja því nauðsynlegt að gripið verði til skipulagðra og markvissra aðgerða til þess að koma í veg fyrir það. Slíkar aðgerðir eru að miklu leyti á ábyrgð sveitarfélaga.
Samtökin vilja leggja sitt af mörkum til þess að stuðla að upplýstri og ábyrgri umræðu um þessi mál í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga, sem fram fara 16. maí nk., og að aðgerðir fyrir bættum loftgæðum verði settar á dagskrá strax í byrjun nýs kjörtímabils. Í þeim tilgangi óska samtökin vinsamlegast eftir svörum frá ykkar framboði við eftirfarandi spurningum um þessi mál:
Mun framboðið beita sér fyrir því að gripið verði til skipulagðra og markvissra aðgerða strax í upphafi nýs kjörtímabils til þess að draga úr líkum á að óheilnæmt ástand skapist í þéttbýli sveitarfélagsins vegna svifryksmengunar?
Til hvaða aðgerða telur framboðið að grípa þurfi í því skyni að koma í veg fyrir að óheilnæmt ástand skapist í þéttbýli innan sveitarfélagsins vegna svifryksmengunar?
Ef framboðið verður í meirihluta, mun það setja þessar aðgerðir fyrir bættum loftgæðum í stefnuyfirlýsingu meirihlutans að loknum kosningum?
Svörin verða birt opinberlega 10 dögum fyrir kosningar með það fyrir augum að veita kjósendum upplýsingar um afstöðu og áherslur framboða í loftgæðamálum. Samtökin óska því eftir að svör berist eigi síðar en 30. apríl á netfangið lungu@lungu.is
Ljóst er að ef ná á árangri er þörf á samvinnu sveitarfélaga og Vegagerðarinnar og að aðgerðir verði skipulagðar með sambærilegum hætti og snjómokstur og hálkuvarnir. Þá er einnig mikilvægt að bæta loftgæðamælingar en því miður skortir á að styrkur svifryks sé vaktaður við stórar umferðargötur í nágrenni íbúabyggðar og skóla í sumum sveitarfélögum. Á vef Lungnasamtakanna [https://www.lungu.is/fraedsla-1/svifryk] er að finna nánari upplýsingar um svifryk og mögulegar aðgerðir til að koma í veg fyrir að það leiði til heilsuspillandi ástands. Þá lýsa samtökin sig reiðubúin til þess að veita ráðgjöf og taka þátt í samráði um hvers kyns aðgerðir sem stuðla að bættum loftgæðum.
Virðingarfyllst, fyrir hönd:
Astma- og ofnæmisfélags Íslands www.ao.is
Hjartaheilla www.hjartaheill.is
Lungnasamtakanna www.lungu.is
SÍBS www.sibs.is





Comments