top of page

Ferðalög

Lungnasjúklingar þurfa að skipuleggja ferðalög með góðum fyrirvara (4 - 8 vikum fyrir brottför)

Flugleiðir
  • Flest flugfélög gera kröfu um að rafhlaðan dugi í flug fram og til baka

  • Kannið hvort flugfélagið sem þú hyggst fljúga með hafi einhverjar sérreglur sem þarft að þekkja

  • Athugið hvort í boði er að fá súrefnissíu leigða á áfangastað (frekar upplýsingar hér fyrir neðan)

Góð ráð 

  • Muna eftir vegabréfinu

  • Ráðfærðu þig við lungnalækni um atriði sem tengjst þér og þínum sjúkdómi

  • Vertu vel byrgur af nauðsynlegum lyfjum

  • Mundu eftir Evrópska sjúkratryggingakortinu (sjá hér fyrir neðan)

  • Eru aðrar tryggingar mögulegar?

  • Sparðu orkuna með því að fá aðgang að hjólastól í flughöfnum (Meira hér)

  • Pantaðu súrefni í lengri flug ef það er mögulegt 

  • Hafa ferðasíuna, auka rafhlöður og hleðslutæki með í flugið

  • Ef gist er í mikilli hæð t.d. í Ölpunum er loftið þynnra og þörf fyrir meira súrefni

  • Skráðu hjá þér allar nausynlegar tengiliðaupplýsingar fyrir öll möguleg neyðartilfelli (t.d. vegna versnunar, bilun á tækjabúnaði eða læknishjálp 

Nánari upplýsingar um einstök atrið má finna neðar  á síðunni

Sjúkratryggingar

Munið að athuga hvort Evrópska sjúkratryggingakortið er í gildi og sækja um endurnýjun ef þörf er á. 

Munið að taka það með í ferðalagið

Evrópska sjúkratryggingakortið

Skoðið frekari upplýsingar um

Sjúkratyggingakortið hér

Evrópska sjúkrtryggigakortið
gildir í 
EES löndum, Bretlandi og Sviss. 

EES lönd þar sem sjúkratryggingakort frá Íslandi eru gild
Ferðamynd

Ferðatryggingar

Hægt er að kaupa ferðatryggingar hjá tryggingarfélögum auk þess sem handhafar greiðslukorta hafa ýmsar tryggingar innifaldar í greiðslukortinu. 
Þetta er að sjálfsögðu hið besta mál en það þarf að gera sér grein fyrir því að í skilmálum geta verið undanþágur sem átt geta við um aðila sem greinst hafa með sjúkdóma eða hlotið meðferð við þeim. Það er því vissara að fara vel yfir skilmálana og  athuga hvort tryggingin skerðist af einhverjum ástæðum í tilfelli hvers og eins.

OC.jpg

Súrefni á áfangastað

  • Víða er hægt að fá súrefnissíu á áfangastað en nauðsynlegt er að undirbúa það vel ef allt á að ganga upp

  • Pantið með góðum fyrirvara með því að hafa samband við þjónustuaðila með eftirfarandi upplýsingar (senda mail)

    • Staðfesting lungnasérfræðings um lungnasjúkdóminn og súrefnisþörf

    • Afrit af Evrópska sjúkratryggingakortinu

    • Afrit af aðalsíðunni í vegabréfinu

    • Upplýsingar um dvalarstað og dvalartíma

    • Persónuupplýsingar (Nafn, netfang, síma, og heimilisfang)​​

    • Í flestum tilfellum þarf að greiða fyrir þjónustuna úr eigin vasa

​​

        eða travelspain@linde.com

  • Hér fyrir neðan eru upplýsingar um fleiri lönd í Evrópu 

Sjúkrtryggingar endurgreiða útlagðan kostnað samkvæmt reikningum sjá frekari upplýsingar á hlekknum hér fyrir neðan

Súrefni á ferð um Evrópu

Lungnasamtökin eru aðilar að "European Federation of Allergy and Airways Diseases Patients’ Associations" eða EFA sem er Evrópskt félag sem tengir saman 48 félagasamtök í 28 löndum sem vinna að velferð sjúklinga með ofnæmi, astma og langvinna lungnateppu (COPD) .

EFA hefur í samvinnu við aðildarfélögin unnið að því að kortleggja aðgengi að þjónustu fyrir súklinga með LLT eða COPD (Chronic Obstructive Pulmonary Disease) á ferðalagi um Evrópu

Ef smellt hér eða á myndina hér til hliðar til að fá frekari upplýsingar um hvernig hægt er að nýta sér þau verkfæri sem orðið hafa til fyrir tilstuðlan þessarar vinnu. 

 

EFA-COPDproject (1).jpeg

OPNUNARTÍMI SKRIFSTOFU

LUNGNASAMTÖKIN

HAFA SAMBAND

Skrifstofan er opin flesta

mánudaga 11:00 - 15:00

eða samkvæmt samkomulagi

Athugið að hringja dyrabjöllunni þar sem útidyrnar eru læstar

Borgartún 28a

105 Reykjavík

Kennitala: 670697-2079

            560-4812

Ef ekki næst samband hringjum við til baka 

             

lungu@lungu.is

FYLGIST MEÐ OKKUR Á FB

  • Grey Facebook Icon
bottom of page