top of page

LUNGNATREFJUN

Lungnatrefjun er læknisfræðilegt heiti á bandvef sem myndast í lungunum.

Með orðinu trefjar er átt við bandvef. Þannig stífna lungun þegar það kemur bandvefur í þau. Lungnatrefjun á sér stað í mörgum gerðum af millivefslungnasjúkdómum. Millivefur er svæðið á milli lungnablaðranna í lungunum. Undir venjulegum kringumstæðum eru lungnablöðrurnar þétt upp við hver aðra og háræðar á milli og enginn annar vefur, en þar eru stöku frumur ónæmiskerfisins. Súrefni kemur úr andrúmslofti niður loftvegina og fer alla leiðina í lungnablöðrurnar og kemst svo yfir í háræðarnar og koltvísýringur kemur úr háræðunum og fer út í andrúmsloftið gegnum loftvegina.

Lungnatrefjun.jpg

​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​Þannig eru stöðug loftskipti í lungunum. Í lungnatrefjun kemur bandvefur og bólga í millivefinn. Við það verður erfiðara fyrir súrefnið að komast milli lungnablöðru og háræðar og þetta leiðir til mæði, sérstaklega við áreynslu. Einnig fylgir þurr hósti og það getur verið þyngdartap. Það fylgir einnig þreyta og lögun á tám og fingrum getur breyst og það er stundum kallað kylfufingur- eða tær. Þannig eru algengustu einkenni lungnatrefjunar mæði, hröð og grunn öndun, hósti sem batnar ekki og kylfufingur, ásamt þreytu og þyngdartapi.

​

Orsakir

Lungnatrefjun kemur fyrir í mörgum millivefslungnasjúkdómum. Áætlað hefur verið að allt að 200 mismunandi sjúkdómar geti valdið millivefslungnasjúkdómum. Lungnatrefjun getur verið stöðug, batnar stundum en getur í mörgum tilfellum versnað með tímanum. Engar góðar aðferðir eru til í dag til þess að spá fyrir um það hvernig þróun hjá einstaklingum með sjúkdóminn verður. Meðal sjúkdóma sem geta leitt til lungnatrefjunar eru iktsýki, herslismein og sarklíki. Einnig heilkenni Sjögrens og ofurnæmislungnabólgur sem eru viðbrögð við innönduðum efnum eins og ryki. Ein algengasta tegund lungnatrefjunar er svokölluð sjálfvakin lungnatrefjun sem að heitir á ensku Idiopathic Pulmonary Fibrosis með skammstöfun IPF.

​​

Greining sjúkdómsins

Það er ekkert eitt próf sem greinir lungnatrefjun en vandleg sögutaka, læknisskoðun og viðbótarpróf hjálpa til við greiningu. Þannig er mikilvægt fyrir lækni að fá ítarlegar upplýsingar um sögu um reykingar og atvinnu, sérstaklega asbest útsetningu og einnig útsetningu fyrir ryki. Stundum eru sjúklingar með lungnatrefjun greindir með aðra sjúkdóma í upphafi eins og hjartabilun, eða langvinna lungnateppu en síðan verður betur ljóst hvað er að. Þannig hafa sumir verið mikið rannsakaðir þegar að greining fæst. Próf sem eru notuð eru meðal annars röntgenmyndir af lungum en tölvusneiðmyndir af lungum segja meira um ástand lungnanna. Stundum er tekið sýni úr slagæð til þess að mæla hlutþrýsting súrefnis og koltvísýrings. Algengt er að fá fráblásturspróf og stundum er gert áreynslupróf. Berkjuspeglun er gerð og tekin sýni af lungnaskolvökva og jafnvel sýni úr lungunum sjálfum. Í sumum tilfellum þarf að gera sýnatöku frá lungum. Niðurstöður allra þessara prófa og skoðana eru ræddar á þverfaglegum fundi og þannig komist að niðurstöðu með sjúkdómsgreiningu.

​​

Áhrif á daglegt líf

Sjúkdómar sem valda lungnatrefjun hafa áhrif á daglegt líf. Úthald verður minna, það verður erfiðara að framkvæma daglega hluti eins og að ganga, fara upp tröppur og fara í verslanir. Stundum verður viðkomandi mjög móður og þarf að stoppa og hvíla sig. Oft hættir fólk að gera það sem það hefur áhuga á, eins og að fara í lengri gönguferðir, golf, eða að veiða. Mikilvægt er að láta sjúkdóminn ekki trufla sig of mikið heldur reyna eins og hægt er að halda áfram daglegum störfum. Oft á tíðum hóstar fólk með lungnatrefjun sem getur verið óþægilegt í margmenni.

​​

Lífstíll sem stuðlar að betri líðan

Hægt er að gera margt til þess að láta sér líða betur þegar maður hefur greinst með lungnatrefjun. Að sjálfsögðu er mikilvægt að hætta alveg reykingum. Þá er mikilvægt að hreyfa sig reglulega. Einnig er regluleg slökun og að forðast streituaðstæður mikilvægt. Það er gott að vera með gott svefnmynstur og fá nægilega langan svefn. Mikilvægt er að borða reglulega til þess að ekki verði of mikið þyngdartap. Heilbrigt fæði getur falist í meiri neyslu á ávöxtum og grænmeti en einnig kjöti og mjólkurvöru og að forðast sykraða drykki og drekka meira af vatni. Þá er oft gott að borða oftar í einu og minna og að vera alltaf með lítinn nestisbita með sér ef farið er út af heimili í meira en tvær klukkustundir. Það er ákaflega mikilvægt fyrir alla með lungnatrefjun að fá bólusetningar, einkum gegn COVID, inflúensu og lungnabólgubakteríum. Mikilvægt er að ræða við fjölskyldu og vini eftir að maður hefur greinst með lungnatrefjun. Það getur verið erfitt að tala um þetta af því það getur verið erfitt að skilja sjúkdóminn og hann er ekki það algengur, eða umtalaður að margir þekki hann og vita því ekki hvernig hann hegðar sér. Í slíkum tilvikum koma upp margar spurningar og gott að skrifa þær hjá sér og spyrja lækni sinn ráða.

​​

Mikilvægt að fylgjast með einkennum

Hjá sumum einstaklingum með lungnatrefjun versna einkenni með tímanum og það er mikilvægt að segja lækni og öðrum heilbrigðisstarfsmönnum skilmerkilega frá því þegar komið er í viðtöl, eða talað í síma. Það á sérstaklega við um að mæði aukist og verði við minni áreynslu en áður. Einnig getur hósti versnað, þreyta aukist og þyngdartap sömuleiðis. Stundum getur verið gott að halda dagbók og jafnvel að vigta sig til þess að átta sig betur á þessu. Ef framþróun verður á sjúkdómnum þannig að einkenni versni, er mjög einstaklingsbundið hvernig það gerist. Hjá sumum stendur sjúkdómurinn í stað svo mánuðum og árum skiptir en hjá öðrum verður gangurinn hraðari. Til er að fólk fái það sem kallað er bráð versnun. Þá geta öll einkenni versnað á mjög stuttum tíma, jafnvel á viku, eða minna og ástand orðið þannig að nauðsynlegt sé að leggjast inn á sjúkrahús.

​​​

Aðrir sjúkdómar sem tengjast lungnatrefjun

Margir aðrir sjúkdómar tengjast lungnatrefjun. Sem dæmi um það er vélindabakflæði og mikilvægt að láta heilbrigðisstarfsmann vita af því. Stundum er gefin lyfjameðferð við því. Fólk getur verið með blandaða mynd lungnatrefjunar og langvinnrar lungnateppu. Þá er kæfisvefn algengur og margir eru einnig með kransæðasjúkdóm og sykursýki. Að búa við lungnatrefjun getur haft mikil áhrif á andlega heilsu. Sjúklingar hafa áhyggjur af því að verði framþróun á sjúkdómi og það verði erfitt að anda og komi til súrefnisgjafar. Mikilvægt er að tala um þetta við bæði heilbrigðisstarfsfólk og vini og ættingja og leita aðstoðar eftir því sem þarf. Lungnasamtökin veita góðan stuðning í slíkum tilfellum. Mikilvægt er að halda jákvæðu hugarfari og það má gera með því að vera duglegur að tala um eigin tilfinningar, fá góðan svefn og borða hollan mat oft á dag. Einnig hjálpar að vera reglulega í líkamsþjálfun en ekki gleyma því að gera það sem manni finnst skemmtilegt og jafnvel að taka upp ný áhugamál ef þau sem fyrir voru er ekki hægt að stunda lengur vegna sjúkdómsins. Þá er slökun afskaplega mikilvæg.

​

Meðferð

Meðferð við lungnatrefjun getur beinst að undirliggjandi sjúkdómum, einkum ef um er að ræða gigtsjúkdóma eins og iktsýki eða herslismein. Þá eru stundum gefin ónæmisbælandi lyf. Frá árinu 2014 hafa verið tvö lyf á markaði sem eru til þess að draga úr bandvefsmyndun. Þau heita Pirferidone og Nintedanib. Þau eru gefin ýmist tvisvar eða þrisvar á dag. Þessi lyf geta hægt á framþróun sjúkdómsins, minnkað líkur á bráðum versnunum og lækkað dánartíðni vegna sjúkdómsins. Þessi lyf hafa aukaverkanir, einkum frá meltingarvegi, þannig að fólk getur fengið kviðverki, niðurgang, ógleði og uppköst. Í slíkum tilfellum er hægt að aðlaga skammtastærðir af lyfjunum og einnig að gefa lyf sem draga úr þessum einkennum. Ef sjúkdómurinn er lengra genginn er gefið súrefni, ýmist að næturlagi og við áreynslu, eða allan sólarhringinn, nema þegar verið er í hvíld heima. Lungnaendurhæfing er ákaflega mikilvæg og getur haft margvísleg góð áhrif í þessum sjúkdómi. Í mjög fáum tilvikum er gerð lungnaígræðsla við lungnatrefjun. Þetta er einkum ef sjúkdómurinn versnar hratt og kemst á mjög alvarlegt stig þannig að lífsgæði verði mjög takmörkuð. Til þess að geta farið í lungnaígræðslu þarf viðkomandi að vera mjög hraustur að öðru leyti, því að það má í raun ekki vera neitt annað að, sérstaklega ekki kransæðasjúkdómar eða annað slíkt. Stundum gengur sjúkdómurinn áfram með auknum einkennum og þá er valin líknandi meðferð sem getur verið fólgin í sérhæfðri lyfjagjöf sem hefur líknandi áhrif og einnig að leggjast inn á líknardeild ef ekki er hægt að vera heima.

​​

Hér má finna enn frekari upplýsingar á alþjóðlegri síðu um lungnatrefjun

​

OPNUNARTÍMI SKRIFSTOFU

LUNGNASAMTÖKIN

HAFA SAMBAND

Skrifstofan er opin samkvæmt samkomulagi 

hafið samband í síma til að bóka tíma​

Athugið að hringja dyrabjöllunni þar sem útidyrnar eru læstar

​

Borgartún 28a

105 Reykjavík

​

Kennitala: 670697-2079

​

​

            560-4812

​

Ef ekki næst samband hringjum við til baka 

             

lungu@lungu.is

FYLGIST MEÐ OKKUR Á FB

  • Grey Facebook Icon
bottom of page