top of page

Einmanaleiki

  • 4 hours ago
  • 1 min read

Að vera sjálfum sér nægur er eiginleiki sem sumir njóta en það er ekki öllum gefið. Að vera einmana er tilfinning sem margir upplifa, jafnvel þó að þeir séu ekki einir í eiginlegri merkingu.

Að greinast með alvarlegan sjúkdóm sem heftir okkur í daglegu lífi getur hindrað okkur í því að taka þátt í ánægjulegum hlutum sem gáfu lífinu gildi. Getan minnkar og fólk dregur sig í hlé án þess að aðrir verði þess varir og þau geta einangrast og sumir verða einmana.


Hvað er til ráða?


Við leituðum ráða hjá sérfræðingi í málefninu sem ætlar að fræða okkur um einmanaleika og gefa okkur góð ráð sem geta hjálpað til að brjótast út úr viðjum einangrunar.


Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir hefur sérhæft sig á þessu sviði og mun flytja erindi á félagsfundi mánudaginn 2. mars í Lindakirkju kl. 17:00


Allir velkomnir

Comments


OPNUNARTÍMI SKRIFSTOFU

LUNGNASAMTÖKIN

HAFA SAMBAND

Skrifstofan er opin samkvæmt samkomulagi 

hafið samband í síma til að bóka tíma​

Athugið að hringja dyrabjöllunni þar sem útidyrnar eru læstar

Borgartún 28a

105 Reykjavík

Kennitala: 670697-2079

            560-4812

Ef ekki næst samband hringjum við til baka 

             

lungu@lungu.is

FYLGIST MEÐ OKKUR Á FB

  • Grey Facebook Icon
bottom of page