Perlupepp í janúar
- andrjesgudmundsson
- Dec 26, 2025
- 1 min read

Vantar þig smá bjartsýni í líf þitt og viltu innblástur til að finna hana?
Í fyrirlestrinum ,,Veldu þér viðhorf" fjallar Perla Magnúsdóttir, stundum kölluð Perla Pepp, um það hvernig bjart viðhorf getur breytt öllu fyrir okkur. Með því að trúa á okkur sjálf og taka ábyrgð á að skapa það líf sem við viljum lifa getum við notið þess enn meira og liðið betur með okkur sjálf. Farið verður yfir nokkur ráð sem geta hjálpað við að byggja okkur upp sem manneskjur og hvernig við getum tekist á við okkar flókna en magnaða huga.
Perla starfar sem fyrirlesari, leiðsögumaður og er með diplómu í jákvæðri sálfræði.
