top of page

Loftgæði eru lífsgæði

Hér fyrir neðan má sjá þau svör sem okkur hafa borist um aðgeðir sem frambjóðendur munu leggja áherslu á nái þeir að beita áhrifum sínum á næsta kjörtímabili varðand svifryksmengur í þeirra bæjarfélagi

Okkar Borg

Reykjavík

Sælir fulltrúar samtakanna,

Við þökkum fyrir bréfið og staðfestum að það hefur verið komið á framfæri við fulltrúa Okkar borg.

Við deilum áhyggjum ykkar af svifryksmengun og áhrifum hennar á heilsu íbúa.


Svar við spurningum:


Já. Við munum beita okkur fyrir markvissum aðgerðum til að draga úr svifryksmengun.

Við teljum að regluleg og vönduð þrif á götum skipti sköpum. Jafnframt þarf að skoða gæði efnis sem lagt er á götur og auka gróðursetningu við götur til að binda mengun.


Áhersla okkar er að fara í raunhæfar og árangursríkar aðgerðir – ekki gefa loforð sem ekki er hægt að standa við. Verði Okkar borg hluti af meirihluta munum við vinna að því að þessi mál fái skýra stöðu í stefnu og forgangsröðun borgarinnar.

Við erum opin fyrir frekara samtali. Svör okkar má birta opinberlega.


Bestu kveðjur,

Okkar Borg X-R

okkarborg@okkarborg.is

www.okkarborg.is

Okkar Borg X-R

Píratar Stjórnmálahreyfing

Reykjavík

1. Mun framboðið beita sér fyrir því að gripið verði til skipulagðra og ma1rkvissra

aðgerða strax í upphafi nýs kjörtímabils til þess að draga úr líkum á að óheilnæmt ástand skapist í þéttbýli veitarfélagsins vegna svifryksmengunar?


Já, Píratar vilja tryggja aðgengi sem flestra að borginni og ljóst er að svifryksmengun gerir það að verkum að mörg geta ekki farið út úr húsi á slæmum dögum. Leikskólabörn og eldra fólk geta ekki notið útiveru þegar loftgæði eru slæm. Unnið er að tillögum innan Umhverfisog skipulagssviðs um hvernig minnka megi svifryk með sem áhrifaríkustum hætti. Það er mikilvægt að grípa til skipulagðra og markvissra aðgerða ekki seinna en núna.


2. Til hvaða aðgerða telur framboðið að grípa þurfi í því skyni að koma í veg fyrir að óheilnæmt ástand skapist í þéttbýli innan sveitarfélagsins vegna svifryksmengunar? [sjá lista um mögulegar aðgerðir í tölvupósti eða á vefsíðu]


Þær aðgerðir sem koma fram á vefsíðu félagsins eru Píratar hlynntir. En við teljum raunhæfast að grípa til eftirfarandi aðgerða innan borgarkerfisins:

Mikilvægt er að draga úr notkun nagladekkja í Reykjavík. Píratar eru hlynntir meginreglunni um að “þau borga sem menga” svo Píratar myndu vilja auka gjaldtöku vegna notkunar nagladekkja.

Tryggja þrif á götum og rykbindingu.

Minnka umferð, til dæmis með aukinni notkun almenningssamgangna. Hraðaminnkandi aðgerðir, þ.e.a.s draga úr hámarkshraða á götum.

3. Ef framboðið verður í meirihluta, mun það setja þessar aðgerðir fyrir bættum loftgæðum í stefnuyfirlýsingu meirihlutans að loknum kosningum?


Píratar telja bætt loftgæði vera mannréttindamál. Til að tryggja aðgengi sem flestra að borginni þurfa að koma fram aðgerðir fyrir bættum loftgæðum. Píratar eru hlynntir því að setja slíkar aðgerðir í stefnuyfirlýsingu meirihlutans.

Charlotte Ólöf Jónsdóttir Biering

Samfylkingin

Reykjavík

Góða kvöldið og kærar þakkir fyrir erindið.

Málið er okkur mikilvægt í Samfylkingunni á Akureyri, en hér í bæ gerist það allt of oft að loftgæði séu slæm, með tilheyrandi afleiðingum fyrir heilsu, líðan og virkni íbúa - bæði til skamms tíma og langs. Framboð Samfylkingarinnar á Akureyri er meðvitað um alvarleika svifryksmengunar, orsakir hennar og ábyrgð sveitarfélaga í að stemma stigu við vandanum.


Stórt skref var stigið í bænum árið 2023, eftir langan aðdraganda, þegar Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra lagði fram og samþykkti viðbragðsáætlun til að bæta loftgæði utandyra. Viðbragðsáætlunin felur eingöngu í sér skammtímaaðgerðir til að draga úr loftmengun þegar 'toppar' verða í svifryki. Áætlunin er vandað og gagnlegt plagg og í henni eru skilgreind hlutverk mismunandi aðila; Heilbrigðisnefndar, Vegagerðarinnar og Akureyrarbæjar. Mikilvægt er að ábyrgðarskipting sé skýr og um leið að samstarf sé gott hjá öllum aðilum. Varla þarf að taka fram að nauðsynlegt er að allir aðilar sinni sínum hlutverkum eins og lagt er upp með.


Eins og fram kemur í viðbragðsáætluninni eru ýmsar leiðir færar til að bregðast við slæmu ástandi, s.s. rykbinding á vegum, tímabundin lækkun hámarkshraða, upplýsingagjöf og viðvaranir til fólks svo það sé meðvitað um ástandið og geti hlíft sér við áreynslu og útiveru á verstu dögunum. Lengi hefur verið rætt um það á Akureyri að byrja að mæla meira, en þeir mælar sem áttu að bætast við þá sem fyrir eru komust aldrei í notkun og enn ekki ljóst hvað á að gera í staðinn. Samfylkingin á Akureyri harmar  það í hversu mörg ár hefur verið rætt um betri mælingar, án nokkurs árangurs í þeim efnum. Samfylkingin á Akureyri gerir sér um leið grein fyrir því að við mælum okkur ekki frá vandanum. Það er alveg ljóst að ráðast verður að rót vandans, sem felst í miklum akstri, sliti á malbiki og nagladekkjanotkun. Landfræðileg og veðurfarsleg skilyrði spila svo inn í og froststilludagar í Eyjafirði eru sérstaklega slæmir, Þetta gerir verkefnið meira krefjandi en ella, en ekki óyfirstíganlegt.


Samfylkingin á Akureyri tekur svifryksmengun og afleiðingar hennar alvarlega, eins og kemur fram í stefnuskrá flokksins fyrir kosningarnar 16. maí. Fyrir utan að leggja áherslu á að viðbragðsáætlun verði fylgt þegar það á við mun Samfylkingin á Akureyri leggja höfuðáherslu á að stórbæta strætókerfi bæjarins. Í dag er leiðarkerfið óhentugt fyrir fólk í hversdeginum, það er langt á milli ferða, ekki er keyrt í jaðra byggðarinnar og oft þarf fólk að sitja í strætó mjög langan hring áður en það kemst á leiðarenda. Þessu viljum við breyta. Við viljum gera það raunhæfan kost fyrir Akureyringa að nota almenningssamgöngur, draga úr skutli og styðja við vistvænar samgöngur með gerð hjólastíga og bættri aðstöðu til að geyma hjól. Í dag eiga margir mjög dýr og góð rafmagnshjól sem það veigrar sér við að nota innanbæjar, þar sem ekki eru til staðar innviðir til að geyma hjólin. Þessu má auðveldlega kippa í liðinn með sambærilegum hjólageymslum og notaðar eru víða í nágrannalöndum okkar. Eins viljum við athuga af alvöru hvort rétt sé að lækka hámarkshraða á ákveðnum götum sem dregur úr svifryki, og að bærinn gangi fram með góðu fordæmi og notist við örugg vetrardekk á sínum bifreiðum frekar en að nota nagla.

Fyrir hönd Samfylkingarinnar á Akureyri og með góðri kveðju,


Kristín Helga Schiöth


frambjóðandi og fulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri í Umhverfis- og mannvirkjaráði

Sonja Gudjonsdottir

Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík

Reykjavík

1. Mun framboðið beita sér fyrir því að gripið verði til skipulagðra og markvissra aðgerða strax í upphafi nýs kjörtímabils til þess að draga úr líkum á að óheilnæmt ástand skapist í þéttbýli sveitarfélagsins vegna svifryksmengunar?


a.   Já. Við ætlum að fara í átak í að bæta umhirðu borgarlandsins á fyrstu 100 dögum nýs meirihluta.  Á meðan við áttum okkur fylliilega á því að svifryksmengun er vandamál sem fleiri þurfa að koma að þá er nauðsynlegt að borgin geri það sem hún getur. Ein af grunnskyldum borgarinnar er að þrífa götur og hirða um borgarumhverfið og mun það vera  eitt af forgangsmálum okkar.. Við erum þeirrar skoðunnar að hrein borg sé fögur og heilnæm borg.


2. Til hvaða aðgerða telur framboðið að grípa þurfi í því skyni að koma í veg fyrir að óheilnæmt ástand skapist í þéttbýli innan sveitarfélagsins vegna svifryksmengunar? [sjá lista um mögulegar aðgerðir í tölvupósti eða á vefsíðu]


a. Við leggjum áherslu á aðgerðir sem skila raunverulegum árangri hratt:


  • Aukin og markviss þrif gatna og rykbinding á álagstímum.

  • Skýr viðbragðsáætlun þegar mengun fer yfir viðmiðunarmörk.

  • Betri samhæfing við Vegagerðina um helstu stofnvegi.

  • Snjallvæðing umferðarljósa til að draga úr stöðvun og hægagangi bíla.

  • Bætt eftirlit og skýrari kröfur um framkvæmdir og efnisflutninga.

  • Markvissari loftgæðamælingar, sérstaklega við umferðargötur og nærri skólum.

Markmiðið er að draga sérstaklega úr toppum svifryks sem valda heilsutjóni.


3. Ef framboðið verður í meirihluta, mun það setja þessar aðgerðir fyrir bættum loftgæðum í stefnuyfirlýsingu  meirihlutans að loknum kosningum?


a. Já. Við teljum mikilvægt að bætt loftgæði verði hluti af skýrri stefnuyfirlýsingu nýs meirihluta, með mælanlegum markmiðum og reglulegri eftirfylgni.


Kveðja,


Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins

SósÍalistaflokkurinn

Reykjavík

1. Mun framboðið beita sér fyrir því að gripið verði til skipulagðra og markvissra aðgerða strax í upphafi nýs kjörtímabils til þess að draga úr líkum á að óheilnæmt ástand skapist í þéttbýli sveitarfélagsins vegna svifryksmengunar? 


Í ljósi þess vaxandi lýðheilsuvandamáls sem svifryksmengun er á höfuðborgarsvæðinu telur Sósíalistaflokkurinn brýnt að taka til raunverulegra aðgerða til að bæta úr ástandinu.


2. Til hvaða aðgerða telur framboðið að grípa þurfi í því skyni að koma í veg fyrir að óheilnæmt ástand skapist í þéttbýli innan sveitarfélagsins vegna svifryksmengunar? [sjá lista um mögulegar aðgerðir í tölvupósti eða á vefsíðu]


Eina varanlega lausnin er að sveitarfélögin fái lagalega heimild til þess að setja á nagladekkjagjöld. Ísland sker sig úr frá öllum hinum norðurlöndunum þar sem þessar lagaheimildir eru til staðar og er beitt af flestum sveitarfélögum þar á meðal í borgum sem hafa harðari vetur og meiri úrkomu en Reykjavík á borð við Þrándheim. Þar sem nagladekk eru megin orsök svifryksmengunar og notkun þeirra há á höfuðborgarsvæðinu er eina varanlega lausnin á svifryksvandanum að draga úr notkun þeirra með því að gera þau gjaldskyld. Sanngjarnt gjald sem væri skipt í tvo flokka eftir þyngd bifreiða myndi á nokkrum árum draga verulega úr notkun nagladekkja. Eftir því sem við komumst næst er Sósíalistaflokkurinn eini flokkurinn í borgarstjórnarkosningunum með þetta í stefnuskrá sinni, og hefur og mun halda áfram að tala fyrir þessu opinberlega.

Aðrar aðgerðir sem brýnt er að taka til er að bæta götuhreinsun með því að auka fjármögnun og bæta markvissar mælingar og eftirlit og hætta útvistun hreinsunnar til einkaaðila sem skila lélegri gæðum en borgin gæti skilað með því að vinna verkið sjálft. Einnig viljum við tryggja að ástand skapist ekki aftur eins og gerðist í febrúar þar sem vegagerðin klárar rykbindiefni sitt með því að Reykjavíkurborg kaupi sjálf nægilegar birgðir til að bregðast við toppum og velti ekki bara ábyrgðinni á aðrar stofnanir.

Lækkun hraða á höfuðborgarsvæðinu er mikilvægt bæði til að draga úr svifryksmengun en einnig í ljósi rannsókna sem sýna að 70km hámarkshraði í stað 80km dregur verulega úr hættunni á alvarlegum slysum og sérstaklega dauðaslysum.

Að lokum teljum við að plöntun trjágróðurs og notkun grænna svæða til að takmarka mengun frá gatnakerfinu og einangra íbúahverfi frá henni sé gífurlega mikilvægt til að skapa lífvæna og heilbrigða borg og að borgin beiti sér til að tryggja að öll hverfi séu skipulögð með þetta í huga.


3. Ef framboðið verður í meirihluta, mun það setja þessar aðgerðir fyrir bættum loftgæðum í stefnuyfirlýsingu meirihlutans að loknum kosningum?


Já við munum berjast fyrir þessum málaflokki í öllum meirihlutaviðræðum sem við munum taka þátt í.

Sæþór Randalsson

Vinstrið

Reykjavík

Loftgæði og svifryksvarnir í Reykjavík


Mun framboðið beita sér fyrir því að gripið verði til skipulagðra og markvissra aðgerða strax í upphafi nýs kjörtímabils til þess að draga úr líkum á að óheilnæmt ástand skapist vegna svifryksmengunar?


Vinstrið lítur á hreint loft sem grundvallar mannréttindi borgarbúa. Við munum mæta loftmengun með vísindalega rökstuddum aðgerðum og skýrri framtíðarsýn. Það er forgangsmál hjá okkur að verja heilsu fólks, sérstaklega þeirra sem viðkvæmastir eru fyrir, með því að draga markvisst úr svifryksmengun og auka gróðursælni í öllum hverfum borgarinnar.


Til hvaða aðgerða telur framboðið að grípa þurfi í því skyni að koma í veg fyrir að óheilnæmt ástand skapist vegna svifryksmengunar?


Við í Vinstrinu viljum innleiða nútímalegar lausnir við föngum svifryks líkt og gert hefur verið víða í Evrópu. Með því að nota rennisteina og gegndræp yfirborðsefni búum við til farvegi sem leiða svifryk sem leiða má með ofanvatni í hreinsikerfi. Þannig komum við í veg fyrir að rykið safnist upp og þyrlist út í andrúmsloftið þegar þornar í veðri. Í stað þess að bíða þess að svifryk nái óheilnæmum mörkum, leggjum við áherslu á reglubundna götusópun og spúllun. Mikilvægt er að hreinsa jaðarsvæði gatna og umferðareyjar markvisst, sérstaklega yfir blaut tímabil og áður en þurrviðriskaflar ganga yfir, til að binda rykið og fjarlægja það úr umhverfinu.

Við ætlum að auka gróðurþekju milli akreina og meðfram helstu umferðaræðum borgarinnar. Markviss gróðursetning og fjölgun grænna svæða gegnir lykilhlutverki í að fanga og binda svifryk. Með þessu nýtum við náttúruna sem öfluga loftsíu sem bætir lífsgæði okkar allra, um leið og hún gerir Reykjavík grænni og fegurri.


Ef framboðið verður í meirihluta, mun það setja þessar aðgerðir fyrir bættum loftgæðum í stefnuyfirlýsingu meirihlutans að loknum kosningum?


Við teljum bætt loftgæði vera jafnræðismál og skyldu ábyrgra stjórnvalda að bregðast við enda mun minna svifryk í andrúmsloftinu bæta lífsgæði fyrir alla íbúa.

Miðlægt svar

Viðreisn Reykjavík

Reykjavík

Góðan daginn


Takk kærlega fyrir póstinn. Sjá hér fyrir neðan svör Viðreisnar í Reykjavík.


1. Já. Við viljum setja þetta í forgang strax í upphafi kjörtímabils.


2. Loftgæði eru ekki eitthvað aukaatriði heldur snerta beint heilsu fólks í daglegu lífi. Þar skipta almenningssamgöngur miklu máli. Með því að gera þær raunhæfan valkost fyrir fleiri má draga úr umferð og þar með úr svifryksmengun. Í okkar stefnuskrá er líka skýrt að draga þurfi úr notkun nagladekkja, til dæmis með því að ríkið innheimti gjald af þeim og tekjurnar fari til sveitarfélaga. Einnig viljum við bjóða frítt í strætó á þeim dögum þegar loftgæði eru verst, til að hvetja fólk til að velja aðra ferðamáta.


3. Já. Við munum leggja áherslu á aðgerðirnar sem taldar eru upp hér að ofan.


Kær kveðja,

Viðreisn í Reykjavík

Viðreisn í Reykjavík

Sjálfstæðisflokkurinn í Mosfellsbæ

Mosfellsbær

Sæl og takk fyrir erindið


Við hjá Sjálfstæðisflokknum í Mosfellsbæ erum vel meðvituð um mikilvægi góðra loftgæða og þær áskoranir sem svifryksmengun getur skapað fyrir íbúa, sérstaklega börn, eldri borgara og þá sem glíma við öndunarfæra- og hjartasjúkdóma.


Eitt af okkar 50 fyrirheitum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar er einmitt að tryggja að loftgæðamælingum verði komið á í Mosfellsbæ, enda hefur enginn loftgæðamælir verið í bænum og því skortur á reglulegum mælingum. Við teljum að áreiðanleg gögn séu forsenda fyrir því að við getum metið með vísindalegum hætti hvaða aðgerða er þörf.


Þegar við erum komin með betri loftgæðamælingar í Mosfellsbæ verður unnt að meta nákvæmlega hvenær og hvar þörfin er mest. Þannig getum við gripið til viðeigandi ráðstafana, svo sem að auka götuhreinsun á ákveðnum tímum, bleyta í vegum eða innleiða aðrar lausnir sem hjálpa til við að tryggja heilnæmt loft.


Við viljum leggja áherslu á að skoða frekari aðgerðir gegn mengun og svifryki, meðal annars í samstarfi við Vegagerðina og aðra hagaðila, með það að markmiði að bæta loftgæði til framtíðar.


Já, við munum leggja ríka áherslu á að þessi mál verði sett á dagskrá og teljum það mikilvægt fyrsta skref að reglubundnum mælingum verði komið á sem fyrst.



Bestu kveðjur úr Mosfellsbæ

Erla María Jónsdóttir Tölgyes

Flokkur fólksins

Miðlægt svar flokksins

Svar borgarstjórnarflokks Flokks fólksins til lungu@lungu.is


Mun framboðið beita sér fyrir því að gripið verði til skipulagðra og markvissra aðgerða strax í upphafi nýs kjörtímabils til þess að draga úr líkum á að óheilnæmt ástand skapist í þéttbýli sveitarfélagsins vegna svifryksmengunar?


Já. Flokkur fólksins telur brýnt að gripið verði til skipulagðra og markvissra aðgerða strax í upphafi nýs kjörtímabils. Sveitarfélög bera skýra ábyrgð á að bregðast við með forvörnum og aðgerðum þar sem við á til að tryggja loftgæði.


2. Til hvaða aðgerða telur framboðið að grípa þurfi í því skyni að koma í veg fyrir að óheilnæmt ástand skapist í þéttbýli innan sveitarfélagsins vegna svifryksmengunar?


Grípa verður bæði til skammtíma- og langtímaaðgerða til að bæta loftgæði í borginni. Þeirra  á meðal eru:

  • Æskilegt væri að takmarka notkun nagladekkja til að draga þannig úr svifryksmengun.Markvissari      og tíðari þrif gatna og gangstétta ásamt rykbindingu þegar svifryk er      hvað mest.

  • Bætt  viðhald gatna og slitlags til að draga úr myndun svifryks.

  • Draga úr umferðarteppum með snjallstýrðum umferðar- og gönguljósum.

  • Skýr viðbragðsáætlun þegar mælingar sýna hættuleg gildi, m.a. með      tímabundnum aðgerðum í umferð og upplýsingagjöf til almennings.

  • Aukið samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, þar sem loftmengun þekkir      ekki sveitarfélagamörk.

  • Fræðsla og upplýsingagjöf til íbúa um áhrif svifryks og hvernig allir geta      lagt sitt af mörkum.

Við leggjum áherslu á að aðgerðir séu raunhæfar, byggðar á gögnum og unnar í samráði við heilbrigðisyfirvöld og hagsmunasamtök.


3. Verða aðgerðir fyrir bættum loftgæðum settar í stefnuyfirlýsingu meirihluta?


Já. Ef Flokkur fólksins verður í meirihluta munu aðgerðir til að bæta loftgæði og draga úr svifryksmengun settar skýrt fram í stefnuyfirlýsingu þess meirihluta. Við teljum mikilvægt að að nýr meirihluti hafi skýra sýn í þessum efnum.  Nauðsynlegt er að setja fram mælanleg markmið og þeim fylgt eftir með reglulegri endurskoðun. Bætt loftgæði eru ekki aðeins umhverfismál heldur grundvallaratriði í velferð og heilsu íbúa borgarinnar.

Flokkur fólksins Reykjavík

L-listinn á Akureyri

Miðlægt svar flokksins

Svör L-listans við fyrirspurn um loftgæði



1. Mun framboðið beita sér fyrir markvissum aðgerðum?


Já.


Á yfirstandandi kjörtímabili hefur verið unnið markvisst að því að bæta loftgæði, m.a. með innleiðingu verklagsreglna um viðbrögð við loftmengun, aukinni vöktun og skýrari viðbragðsferlum. Þær reglur byggja á því að loftmengun sé fyrirsjáanlegt vandamál sem hægt er að bregðast við með skipulögðum hætti


Þrátt fyrir það sýnir reynsla síðustu ára að álagstímabil, sérstaklega yfir vetrarmánuði, valda enn óheilnæmum toppum í svifryki. Það er því ljóst að halda þarf áfram og herða aðgerðir.


Við munum áfram beita okkur fyrir því að markvissar aðgerðir verði í forgangi frá upphafi næsta kjörtímabils, með áherslu á að draga úr þessum toppum.


2. Hvaða aðgerðir telur framboðið þurfa að grípa til?


Á þessu kjörtímabili hefur þegar verið stigið mikilvægt skref:

  • Settar hafa verið skýrar verklagsreglur um viðbrögð við loftmengun

  • Unnið hefur verið markvisst að auknum götuþrifum og bættri verkstýringu

Þetta er í samræmi við stefnu okkar um að draga úr svifryki með auknum þrifum og bættu eftirliti.


Hins vegar er ljóst að gera þarf betur. Helstu áherslur næsta kjörtímabils verða:

  • Auka enn frekar þrif á götum, sérstaklega við aðstæður þar sem hætta er á svifryksmyndun

  • Draga úr orsökum vandans, m.a. með því að hvetja til minni notkunar nagladekkja og bæta verklag við hálkuvarnir

  • Styrkja viðbragðsaðgerðir, svo sem rykbindingu og tímabundnar umferðartakmarkanir þegar aðstæður krefjast

  • Efla mælingar: Á yfirstandandi kjörtímabili var farið í uppsetningu fjölda lítilla loftgæðamæla með það að markmiði að fá betri yfirsýn yfir dreifingu mengunar innan bæjarins. Sú reynsla sýndi hins vegar að þeir mælar uppfylla ekki þær kröfur sem þarf til að byggja á þeim ákvarðanir um viðbrögð og aðgerðir.

Á næsta kjörtímabili leggjum við því áherslu á að fjárfesta í áreiðanlegum, viðurkenndum mælibúnaði sem stenst kröfur um nákvæmni og nýtist sem traustur grunnur fyrir ákvarðanatöku, viðbragðsáætlanir og upplýsingagjöf til íbúa.


3. Verður þetta sett í stefnuyfirlýsingu meirihluta?


Já.


Bætt loftgæði eru hluti af stefnu okkar og verða áfram sett í forgang. Við munum leggja áherslu á að aðgerðir gegn svifryki verði skýrt skilgreindar í stefnuyfirlýsingunni.

Við lítum svo á að þótt árangur hafi náðst, þá sé verkefnið langt frá því að vera lokið og krefjist áframhaldandi, markvissrar vinnu á næsta kjörtímabili

María

Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi

Kópavogur

Góðan dag


​ Það er ábyrgð allra að bregðast við mengun. Í Kópavogi eru götur sópaðar að vetrarlagi þegar aðstæður gefast, og það verklag hefur verið við lýði í þó nokkur ár. Allar helstu umferðaræðar voru sópaðar í nóvember þegar frostlaust var, og svo aftur í lok janúar, sem er vissulega óvenjulegt á þessum árstíma. Þá mælir heilbrigðiseftirlitið svifryksmengunina, og eru þær upplýsingar opinberar sem bæjarbúar geta fylgst með.


Mikilvægt er að hafa í huga að svifryk ber enga virðingu fyrir sveitarfélagsmörkum eða veghöldurum og færist til eins og vindar blása. Í langvarandi austanátt má reikna með að svifryk eigi ekki bara uppruna sinn frá umferðargötum, heldur einnig og sennilega í talsverðum mæli af söndunum austan við okkur, svo sem í Ölfusi, og einnig enn austar, s.s. Landeyjarsandi o.s.frv. Einnig hefur verið mjög snjólétt á hálendinu, og þar hefur jarðvegur ekki bundist neðan við snjó og ísalög. Búast má við að svifrykið á höfuðborgarsvæðinu eigi einnig rætur að rekja þaðan.


Kv, Lilja

Kosningastjóri

Lilja Birgisdóttir

Framsókn Hafnarfirði

Hafnarfjörður

1. Mun framboðið beita sér fyrir markvissum aðgerðum strax?

Já, framboðið mun beita sér fyrir því að gripið verði til skipulagðra og markvissra aðgerða strax í upphafi kjörtímabils til að draga úr svifryksmengun.


Við lítum á loftgæði sem lykilþátt í lýðheilsu og lífsgæðum íbúa og viljum byggja áfram á þeirri vinnu sem þegar hefur verið unnin í bænum, svo sem auknum snjómokstri og reglulegri sópun gatna.


Við munum jafnframt styðjast við gildandi stefnumótun bæjarins, þar á meðal trjáræktarstefnu, þar sem skýrt kemur fram að tré og gróður draga úr svifryki og bæta loftgæði í þéttbýli


Áhersla okkar verður því á að:

  • Efla fyrirbyggjandi aðgerðir

  • Nýta mælingar betur

  • Samþætta aðgerðir við núverandi umhverfis- og loftslagsstefnu


2. Til hvaða aðgerða telur framboðið að grípa þurfi?


Framboðið leggur áherslu á samþættar aðgerðir, þar sem unnið er bæði með innviði, skipulag og náttúrulegar lausnir.


1. Fyrirbyggjandi aðgerðir


  • Halda áfram og efla sópun gatna, sérstaklega á svæðum með mikla umferð

  • Efla snjómokstur til að draga úr notkun nagladekkja

  • Auka fræðslu og hvata til að minnka notkun nagladekkja


2. Grænar lausnir – lykilatriði

  • Auka markvisst trjágróður og græn svæði í þéttbýli

  • Nota trjábelti og gróður sem vörn gegn svifryki og vindi

  • Samræma þetta skipulagi nýrra og eldri hverfa

Þetta byggir beint á stefnu bæjarins þar sem fram kemur að:


  • Tré draga úr mengun, svifryki og hávaða

  • Aukin trjárækt bætir loftgæði og lífsskilyrði íbúa

3. Mælingar og gögn

  • Nýta betur núverandi loftgæðamæla (t.d. á Völlunum og Holti)

  • Meta þörf á fleiri mælipunktum, sérstaklega á þungum umferðarsvæðum

  • Gera gögn aðgengileg íbúum

4. Skipulag og umhverfi

  • Tryggja að græn svæði og trjágróður séu hluti af skipulagi frá upphafi

  • Styðja við vistvænar samgöngur (ganga, hjól)

  • Nota gróður sem hluta af hljóð- og mengunarvörnum

5. Fræðsla og samfélagsþátttaka

  • Auka vitund um áhrif svifryks

  • Hvetja íbúa og fyrirtæki til þátttöku

3. Mun framboðið setja þetta í stefnuyfirlýsingu meirihluta?


Já, ef framboðið verður í meirihluta mun það leggja áherslu á að aðgerðir til bættra loftgæða verði skýrt settar fram í stefnuyfirlýsingu meirihlutans.


Við teljum mikilvægt að:

  • · Loftgæði séu forgangsmál í stefnumótun sveitarfélagsins

  • · Unnið sé eftir mælanlegum markmiðum og aðgerðaáætlun

  • · Að tryggð sé samfella við gildandi stefnur, svo sem umhverfis- og trjáræktarstefnu

Það er í samræmi við stefnu bæjarins þar sem lögð er áhersla á að:

  • · Trjárækt og græn svæði séu hluti af skipulagi og aðgerðaáætlunum

  • · Að unnið sé markvisst að bættum loftgæðum og sjálfbæru umhverfi til framtíðar

Framsókn Hafnarfjörður

Kolbrún Magnúsdóttir

Miðflokkurinn Akureyri

Akureyri

  1. Áður en endanleg      ákvörðun verður tekin þurfa að fara fram mun meiri rannsóknir á því hvað      veldur þessari mengun á Akureyri og fá staðfest hvaðan þetta ryk      berst.  Það er ekki nóg að segja að hluti komi af notkun nagladekkja,      það verður að koma fram hver orsökin er að fullu.

Hannes Karlsson

Samfylkingunni á Akureyri

Akureyri

Góða kvöldið og kærar þakkir fyrir erindið.


Málið er okkur mikilvægt í Samfylkingunni á Akureyri, en hér í bæ gerist það allt of oft að loftgæði séu slæm, með tilheyrandi afleiðingum fyrir heilsu, líðan og virkni íbúa - bæði til skamms tíma og langs. Framboð Samfylkingarinnar á Akureyri er meðvitað um alvarleika svifryksmengunar, orsakir hennar og ábyrgð sveitarfélaga í að stemma stigu við vandanum.


Stórt skref var stigið í bænum árið 2023, eftir langan aðdraganda, þegar Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra lagði fram og samþykkti viðbragðsáætlun til að bæta loftgæði utandyra. Viðbragðsáætlunin felur eingöngu í sér skammtímaaðgerðir til að draga úr loftmengun þegar 'toppar' verða í svifryki. Áætlunin er vandað og gagnlegt plagg og í henni eru skilgreind hlutverk mismunandi aðila; Heilbrigðisnefndar, Vegagerðarinnar og Akureyrarbæjar. Mikilvægt er að ábyrgðarskipting sé skýr og um leið að samstarf sé gott hjá öllum aðilum. Varla þarf að taka fram að nauðsynlegt er að allir aðilar sinni sínum hlutverkum eins og lagt er upp með.


Eins og fram kemur í viðbragðsáætluninni eru ýmsar leiðir færar til að bregðast við slæmu ástandi, s.s. rykbinding á vegum, tímabundin lækkun hámarkshraða, upplýsingagjöf og viðvaranir til fólks svo það sé meðvitað um ástandið og geti hlíft sér við áreynslu og útiveru á verstu dögunum. Lengi hefur verið rætt um það á Akureyri að byrja að mæla meira, en þeir mælar sem áttu að bætast við þá sem fyrir eru komust aldrei í notkun og enn ekki ljóst hvað á að gera í staðinn. Samfylkingin á Akureyri harmar  það í hversu mörg ár hefur verið rætt um betri mælingar, án nokkurs árangurs í þeim efnum. Samfylkingin á Akureyri gerir sér um leið grein fyrir því að við mælum okkur ekki frá vandanum. Það er alveg ljóst að ráðast verður að rót vandans, sem felst í miklum akstri, sliti á malbiki og nagladekkjanotkun. Landfræðileg og veðurfarsleg skilyrði spila svo inn í og froststilludagar í Eyjafirði eru sérstaklega slæmir, Þetta gerir verkefnið meira krefjandi en ella, en ekki óyfirstíganlegt.


Samfylkingin á Akureyri tekur svifryksmengun og afleiðingar hennar alvarlega, eins og kemur fram í stefnuskrá flokksins fyrir kosningarnar 16. maí. Fyrir utan að leggja áherslu á að viðbragðsáætlun verði fylgt þegar það á við mun Samfylkingin á Akureyri leggja höfuðáherslu á að stórbæta strætókerfi bæjarins. Í dag er leiðarkerfið óhentugt fyrir fólk í hversdeginum, það er langt á milli ferða, ekki er keyrt í jaðra byggðarinnar og oft þarf fólk að sitja í strætó mjög langan hring áður en það kemst á leiðarenda. Þessu viljum við breyta. Við viljum gera það raunhæfan kost fyrir Akureyringa að nota almenningssamgöngur, draga úr skutli og styðja við vistvænar samgöngur með gerð hjólastíga og bættri aðstöðu til að geyma hjól. Í dag eiga margir mjög dýr og góð rafmagnshjól sem það veigrar sér við að nota innanbæjar, þar sem ekki eru til staðar innviðir til að geyma hjólin. Þessu má auðveldlega kippa í liðinn með sambærilegum hjólageymslum og notaðar eru víða í nágrannalöndum okkar. Eins viljum við athuga af alvöru hvort rétt sé að lækka hámarkshraða á ákveðnum götum sem dregur úr svifryki, og að bærinn gangi fram með góðu fordæmi og notist við örugg vetrardekk á sínum bifreiðum frekar en að nota nagla.


Fyrir hönd Samfylkingarinnar á Akureyri og með góðri kveðju,

Kristín Helga Schiöth

frambjóðandi og fulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri í Umhverfis- og mannvirkjaráði

Kristín Helga Schiöth

Vinstrihreyfingin grænt framboð

Akureyri

Samtökin vilja leggja sitt af mörkum til þess að stuðla að upplýstri og ábyrgri umræðu um þessi mál í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga, sem fram fara 16. maí nk., og að aðgerðir fyrir bættum loftgæðum verði settar á dagskrá strax í byrjun nýs kjörtímabils. Í þeim tilgangi óska samtökin vinsamlegast eftir svörum frá ykkar framboði við eftirfarandi spurningum um þessi mál: 


1.     Mun framboðið beita sér fyrir því að gripið verði til skipulagðra og markvissra aðgerða strax í upphafi nýs kjörtímabils til þess að draga úr líkum á að óheilnæmt ástand skapist í þéttbýli sveitarfélagsins vegna svifryksmengunarr? 


Á liðnu kjörtímabili höfum við beitt okkur fyrir því að takast á við svifryksmengun, meðal annars með því að koma á verklagsreglum. Við munum halda áfram að beita okkur fyrir því að svifryk fari aldrei yfir heilsuverndarmörk með því fylgja því eftir að verklagsreglum verði fylgt, bæta almenningssamgöngur svo þær verði raunverulegur valkostur, hvetja til virkra ferðamáta og fræða til að draga úr notkun nagladekkja. Eins þarf að skoða lækkun hámarkshraða og þrífa götur.

 

2.   Til hvaða aðgerða telur framboðið að grípa þurfi í því skyni að koma í veg fyrir að óheilnæmt ástand skapist í þéttbýli innan sveitarfélagsins vegna svifryksmengunar?


Við teljum að allar þessar aðgerðir, sem eru taldar upp séu aðgerðir sem ætti að grípa til. Við þurfum að fræða fólk um notkun á ónelgdum vetrardekkjum, þar hafa rannsóknir sýnt að oft eru þau öruggari eða jafn örugg. Það er því nauðsynlegt að fræða fólk.


3.   Ef framboðið verður í meirihluta, mun það setja þessar aðgerðir fyrir bættum loftgæðum í stefnuyfirlýsingu meirihlutans að loknum kosningum? 


Við munum setja í stefnuyfirlýsingu að takast þurfi á við svifryk í sveitarfélaginu



Þetta eru svör Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Akureyrarbæ.


Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir

OPNUNARTÍMI SKRIFSTOFU

LUNGNASAMTÖKIN

HAFA SAMBAND

Skrifstofan er opin samkvæmt samkomulagi 

hafið samband í síma til að bóka tíma​

Athugið að hringja dyrabjöllunni þar sem útidyrnar eru læstar

Borgartún 28a

105 Reykjavík

Kennitala: 670697-2079

            560-4812

Ef ekki næst samband hringjum við til baka 

             

lungu@lungu.is

FYLGIST MEÐ OKKUR Á FB

  • Grey Facebook Icon
bottom of page