Framboð boða aðgerðir gegn svifryki
- 24 hours ago
- 2 min read
Framboð til sveitarstjórna sem svöruðu bréfi breiðfylkingar fyrir bætt loftgæði taka undir að grípa þurfi til aðgerða gegn svifryksmengun í þéttbýli.
Lungnasamtökin, Hjartaheill, Astma- og ofnæmisfélag Íslands og SÍBS sendu framboðum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri spurningar um loftgæði og aðgerðir gegn svifryki. Svörin hafa nú verið birt á vef Lungnasamtakanna.
„Það er mjög mikilvægt að sjá að framboð úr ólíkum áttum viðurkenna vandann og boða aðgerðir. Nú skiptir máli að þetta verði ekki bara kosningamál, heldur verkefni sem nýir meirihlutar setja strax á dagskrá að loknum kosningum,“ segir Andrjes Guðmundsson, formaður Lungnasamtakanna.
Samstaða um markmið, ólíkar áherslur í aðgerðum
Þrátt fyrir að áherslur framboðanna séu ólíkar má sjá skýra samstöðu meðal þeirra sem svöruðu um að svifryk sé raunverulegt lýðheilsumál og að sveitarfélög þurfi að bregðast við.
Mörg framboð leggja áherslu á aukna götuhreinsun, rykbindingu og betri viðbragðsáætlanir þegar svifryk fer yfir heilsuverndarmörk. Nokkur framboð nefna sérstaklega mikilvægi þess að draga úr notkun nagladekkja, meðal annars með fræðslu, hvötum eða gjaldtöku. Þá leggja mörg framboð áherslu á bættar loftgæðamælingar, aukið samstarf við Vegagerðina, lækkun hámarkshraða, betri almenningssamgöngur, hjólastíga, gróðursetningu og grænni borgar- og bæjarskipulag.
„Svörin sýna að það er hægt að ná breiðri pólitískri samstöðu um betri loftgæði. Aðgerðirnar geta verið ólíkar, en markmiðið er það sama, að draga úr líkum á því að óheilnæmt ástand skapist og gera fólki kleift að njóta útiveru,“ segir Andrjes, en bætir við: „Við styðjum allar þessar aðgerðir, en viljum benda á mikilvægi þess að það er ekki nóg að ráðast í aðgerðir sem hafa áhrif til lengri tíma. Það þarf líka að grípa til aðgerða sem skila árangri strax.“
Samtökin munu fylgja málinu eftir
Breiðfylkingin leggur áherslu á að aðgerðir gegn svifryki verði settar inn í stefnuyfirlýsingar nýrra meirihluta að loknum kosningum og að unnið verði með markvissum hætti frá upphafi nýs kjörtímabils.
„Góð loftgæði eru hagsmunamál okkar allra, en sérstaklega barna, aldraðra og fólks með lungna-, hjarta- og æðasjúkdóma. Við munum fylgja þessum svörum eftir og kalla eftir því að þau verði að raunverulegum aðgerðum,“ segir Andrjes.
Flest svör bárust frá Reykjavík
Svör bárust frá öllum framboðum í Reykjavík nema tveimur. Þá svöruðu öll framboð á Akureyri nema þrjú spurningunum. Frá framboðum á Hafnarfirði, Kópavogi og Mosfellsbæ bárust aðeins svör frá einu framboði í hverju sveitarfélagi. Engin svör bárust frá framboðum í Garðabæ og á Seltjarnarnesi.
Nánari upplýsingar veitir Andrjes Guðmundsson formaður Lungnasamtakanna í síma 848 8404 og netfanginu lungu@lungu.is





Comments