top of page

Styrkir úr Vísindasjóði Lungnasamtakanna

Styrkur úr Vísindasjóði Lungnasamtakanna 2025 var afhentur þriðjudaginn 13. janúar 2026 við hátíðlega athöfn í húsnæði Endurhæfingarstöðvar hjarta- og lungnasjúklinga (HL-stöðinni), Hátúni 14 í Reykjavík. Umsækjendur um styrki voru að þessu sinni sjö og hlutu fjórir styrki samtals að upphæð 1.500.000 krónur. Sjóðurinn hefur nú fest sig í sessi sem endurspeglast í mjög góðum og spennandi umsóknum. Eftir afhendinguna fluttu styrkþegar stutt og áhugaverð erindi um rannsóknarverkefnin. Rannsóknastyrkir voru eftirtaldir:

  • „ Breytileiki í svipgerðum sarklíkis: erfðir, sjálfsónæmi og áhætta á illkynja sjúkdómum“.


    Tilgangur: Rannsaka mismunandi svipgerðir sarklíkis með það að markmiði að bæta skilning á greiningu, áhættumati og einstaklingsmiðaðri meðferð sjúklinga.


    Umsækjandi: Berglind Árnadóttir doktorsnemandi, leiðbeinandi Björn Guðbjörnsson, prófessor HÍ.

     

  • The female data gap– Addressing the lack of female-specific screening, diagnosis and treatment in obstructive sleep apnea“.


    Tilgangur: Skoða greiningu og meðferð kæfisvefns, meðal kvenna, út frá gögnum sem þegar hefur verið safnað sem hluta af Svefnbyltingunni.


    Umsækjandi: Brynja Rún Svavarsdóttir, doktorsnemandi, leiðbeinandi Erna Sif Arnardóttir, dósent HR.


     

  • Áhrif lágtíðni erfðaþátta og próteina í sermi á áhættu og þróun millivefslungnabreytinga (ILA) í öldruðum Íslendingum“.


    Tilgangur: Þróa spálíkan sem sameinar erfða- og próteinmælingar til þess að meta áhrif lágtíðni erfðaþátta á millivefslungnabreytingar og áhættu á þróun lungnatrefjunar í öldruðum Íslendingum.


    Umsækjandi: Heiða Rún Bjarnadóttir, leiðbeinandi Valborg Guðmundsdóttir, rannsóknalektor HÍ.


     

  • Tengsl taps á Y-litningi við lungnatrefjun“.


    Tilgangur: Rannsaka tengsl mLOY við forstigsbreytingar lungnatrefjunar, og áhrif mLOY á horfur þeirra.


    Meistaraverkefni. Leiðbeinandi Össur Ingi Emilsson, aðjúnkt HÍ.


 Vísindasjóður Lungnasamtakanna var stofnaður 2017. Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir á orsökum lungnasjúkdóma, forvörnum og meðferð sem bæta munu lífsgæði lungnasjúklinga. Mikilvægur þáttur í því er að vekja áhuga nemenda á heilbrigðissviði á sérhæfingu á sviði lungnasjúkdóma. Lungnasamtökin vilja jafnframt leitast við að styrkja starfsemi Vísindasjóðs Lungnasamtakanna sem mest þannig að mögulegt verði að styrkja rannsóknir til að uppfylla þau markmið. Við leitum því að styrktaraðilum, stórum sem smáum, sem leggja vilja sjóðnum lið.



Comments


OPNUNARTÍMI SKRIFSTOFU

LUNGNASAMTÖKIN

HAFA SAMBAND

Skrifstofan er opin samkvæmt samkomulagi 

hafið samband í síma til að bóka tíma​

Athugið að hringja dyrabjöllunni þar sem útidyrnar eru læstar

Borgartún 28a

105 Reykjavík

Kennitala: 670697-2079

            560-4812

Ef ekki næst samband hringjum við til baka 

             

lungu@lungu.is

FYLGIST MEÐ OKKUR Á FB

  • Grey Facebook Icon
bottom of page