SAMTÖK LUNGASJÚKLINGA

Um Lungnasamtökin
Lungnasamtökin voru stofnuð þann 20. maí 1997 af áhugafólki um velferð og hagsmuni fólks með lungnasjúkdóma.
Á vegum samtakanna eru haldnir mánaðarlegir fræðslufundir um lungnasjúkdóma og málefni tengdum þeim og hafa þeir verið vel sóttir. Þó megin tilgangurinn sé að fræða fólk um lungnasjúkdóma og tengd málefni er einnig leitast við að hafa gaman saman og stuðla að því að félagsmenn hittist og ýta þar með undir jafningjafræðslu.
Samtökin gefa út tímaritið Lungu árlega með viðtölum, upplýsingum og fræðslu um málefni fólks með lungnasjúkdóma.
Hér á heimasíðu samtakanna www.lungu.is er leitast við að birta fræðsluefni sem gagnast getur fólki með lungnasjúkdóma og aðstandendum þeirra.
Lungnasamtökin hafa ein og sér og í samvinnu við önnur félög eins og Hjartaheill, Astma og ofnæmisfélagið og Krabbameinsfélag Reykjavíkur unnið að gerð fræðsluefnis um málefni tengd forvörnum. Fræðslumyndbandið "Bara ég hefði aldrei byrjað" er dæmi um það, þar sem fjallað er um Langvinna lungnateppu. Undir fræðsluflipanum hér á vefnum má sjá myndbandið.
Stjórn LS
Formaður
Andrjes Guðmundsson
Stjórnarmenn
Fjóla Grímsdóttir
Helga S. Ragnarsdóttir
Hrönn Árnadóttir
Kristjbjörg María Birgisdóttir
Varamenn
Ólafur Njáll Óskarsson
Rut Gunnarsdóttir
Skoðunarmenn reikninga
Ásmundur Þórisson
Soffía Guðlaugsdóttir